Jólafundur Félags blikksmiðjueigenda, FBE, var vel sóttur en fundurinn fór fram í Húsi atvinnulífsins fimmtudaginn 7. desember. Fundurinn hófst á fordrykk þar sem tekið var á móti gestum. Sævar Jónsson, formaður FBE, setti fundinn og bauð gesti velkomna. Elísa Arnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, kynnti helstu verkefni og starfsemi FBE. Að kynningum loknum var boðið upp á veitingar frá Grillvagninum og uppistand frá Inga B. Róbertssyni.
Vel sóttur jólafundur Félags blikksmiðjueigenda
Jólafundur FBE fór fram í Húsi atvinnulífsins 7. desember.

Tengt efni
Blikksmíði í sviðsljósinu á TikTok

Heimsókn í ný húsakynni Blikksmiðsins
Fulltrúi SI heimsótti ný húsakynni Blikksmiðsins að Bæjarflöt 2.

Atvinnuleysi í byggingariðnaði langt umfram það sem sést í hefðbundinni árstíðasveiflu
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um aukið atvinnuleysi í byggingariðnaði.





