Árangur með samstarfi Íslands og Danmerkur
Það er mikið fagnaðarefni að forseti Íslands, frú Halla Tómasdóttir, hafi þekkst boð um að verða verndari Grænvangs og höfum við þá trú að hún geti leitt saman ólíka aðila til samstarfs að metnaðarfullum markmiðum í loftslagsmálum. Þetta segja Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI og formaður Grænvangs, og Nótt Thorberg, forstöðumaður Grænvangs, í grein sem birt er í Morgunblaðinu í dag undir yfirskriftinni Árangur með samstarfi vinaþjóða.
Í grein sinni segja þau að Ísland hafi sannarlega margt fram að færa. Til að sækja tækifærin þurfi samstarf, bæði heima fyrir og alþjóðlega. Ísland sé í fararbroddi á heimsvísu hvað varðar endurnýjanlega orku. Með áratugalangri nýtingu fallvatna og jarðvarma hafi þróast mikil þekking hér á landi sem nýst hafi í a.m.k. 45 löndum um allan heim og aukið lífsgæði. Auk þess hafi nýsköpun alið af sér nýjar leiðir til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þarna hafi skapast ný tækifæri til þess að ná árangri í loftslagsmálum, ekki bara á Íslandi heldur víða um heim með því að flytja þekkinguna út.
Þá kemur fram í grein þeirra að Grænvangur hafi verið stofnaður að danskri fyrirmynd. Í ríkisheimsókn þáverandi forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessonar, til Danmerkur árið 2017 var hið danska State of Green heimsótt en það er samstarfvettvangur danskra stjórnvalda og atvinnulífs í grænni iðnbyltingu og orkuskiptum. Friðrik X. Danakonungur er verndari State of Green en hann hefur verið verndari vettvangsins frá stofnun. Í ríkisheimsókn forseta Íslands til Danmerkur sem lýkur í dag má segja að hringnum hafi verið lokað þegar forseti Íslands verður verndari Grænvangs.
Þá greina þau frá því að í gær hafi einnig verið undirritaður samstarfssamningur milli Grænvangs og State of Green sem muni efla samstarf ríkjanna sem og íslenskra og danskra fyrirtækja á sviði orku og grænna lausna og geri aðilum kleift að sækja sameiginlega fram þar sem það á við. Markmiðið sé að byggja á styrkleika beggja landa og efla samstarfið í kynningu á grænum lausnum þjóðanna, með þekkingarmiðlun milli landanna og með því að vinna saman að auknu samstarfi Norðurlandanna.
Þau segja að víðtækt samstarf þurfi til að ná metnaðarfullum markmiðum í loftslagsmálum. „Við getum sannarlega náð árangri með því að taka höndum saman, bæði hér innanlands en ekki síður með alþjóðlegu samstarfi. Þó markmiðin geti virst fjarlæg þá eru leiðirnar þangað að miklu leyti þekktar og tæknin þróast hratt.“ Jafnframt kemur fram í grein þeirra að með góðu samstarfi hérlendis og erlendis getum við í senn náð árangri á Íslandi í loftslagsmálum og skapað meiri verðmæti með útflutningi á hugviti og treyst þannig efnahagslegar stoðir Íslands. Samstarf Grænvangs og State of Green sé þýðingarmikið skref í rétta átt.
Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.
Morgunblaðið, 10. október 2024.