Fréttasafn



24. nóv. 2025 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Heimar, SnerpaPower, JÁVERK og Krónan fá umhverfisviðurkenningar

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2025 voru afhent á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem haldinn var í tíunda sinn í morgun á Hilton Reykjavík Nordica. Verðlaunin eru veitt fyrirtækjum sem skara fram úr í umhverfis- og loftslagsmálum og sýna í verki hvernig árangur næst með markvissum aðgerðum, nýsköpun og ábyrgri stjórnun. Að þessu sinni voru fjögur fyrirtæki sem hlutu viðurkenningu; Heimar, SnerpaPower, JÁVERK og Krónan. Það var Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra sem afhenti viðurkenningarnar. Þess má geta að bæði SnerpaPower og JÁVERK eru meðal aðildarfyrirtækja Samtaka iðnaðarins.

Umhverfisdagur_atvinnulifsins_2025_heimar

Umhverfisfyrirtæki ársins 2025 er Heimar

Úr umsögn dómnefndar: „Heimar er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast rekstur á atvinnuhúsnæði. Félagið hefur tekið afgerandi skref í átt að umhverfislega ábyrgri starfsemi og hefur forgangsraðað í þágu árangurs í umhverfismálum og sjálfbærni, hvort sem heldur er horft til ákvarðana í rekstri, fjárfestingum eða fjárfestingarákvörðunum. Heimar hafa innleitt umhverfisstjórnunarkerfi sem tryggir að umhverfissjónarmið séu samþætt allri starfsemi félagsins. Með skýrri sýn, mælanlegum markmiðum og stöðugum umbótum hafa Heimar náð eftirtektarverðum árangri sem sést í fjölgun umhverfisvottaðra eigna, grænni fjármögnun, stýringu og vöktun orkunotkunar og minnkandi kolefnisspori. Heimar eru þannig ekki aðeins að fylgja þróuninni heldur að stýra henni með gagnsæi, ábyrgð og metnaði til að ganga lengra en lög og reglur segja til um.“

Umhverfisdagur_atvinnulifsins_2025_snerpapower

Umhverfisframtak ársins 2025 hlýtur SnerpaPower

Úr umsöng dómnefndar: „SnerpaPower ehf. er tæknifyrirtæki á sviði raforkumarkaðar sem hefur þróað frá grunni hugbúnaðarlausn sem gerir stórnotendum raforku, eins og til dæmis álverum og gagnaverum, kleift að nýta lifandi gagnastrauma til að besta og sjálfvirknivæða skammtíma ákvarðanatöku tengdri raforkunotkun og þátttöku á markaði auk þess að uppfylla skyldur um skil á áætlunum og pöntunum rafmagns. SnerpaPower hefur á örfáum árum umbreytt því hvernig orkusækinn iðnaður nýtir raforku á Íslandi og er fyrirtækið nú að sækja á erlenda markaði. Hugbúnaður SnerpaPower byggir á nýjustu aðferðum í gagnavísindum, gervigreind og vélnámi og styður stórnotendur í að nýta endurnýjanlega orkugjafa á skilvirkari hátt, lækka raforkukostnað og bæta samkeppnishæfni sína á alþjóðamörkuðum. Lausnin eykur nýtni raforkukerfisins alls og skilar umframorku og –afli til samfélagsins sem nýtist beint í orkuskiptin.“

Umhverfisdagur_atvinnulifsins_2025_kronan

Sérstakar viðurkenningar hljóta JÁVERK og Krónan

Úr umsögn dómnefndar um JÁVERK: „Verktakafyrirtækið JÁVERK var fyrsti byggingarverktakinn á Íslandi sem fékk ISO 14001 vottun og hefur með því sannað sig sem leiðandi afl í umbreytingu byggingariðnaðarins í átt að sjálfbærni. Einnig stóðu JÁVERK fyrir fyrsta stóra Svansvottaða verkefni á Íslandi sem var miðbær Selfoss. Umhverfismál eru markvisst sett á dagskrá sem órjúfanlegur hluti í áhættumati við framkvæmdir og stefnumótun fyrirtækisins.“

Úr umsögn dómefndar um Krónuna: „Krónan vill hafa áhrif til góðs og sýna samfélagslega ábyrgð í verki. Það hefur matvöruverslunin gert með því að beina kröftum sínum að umhverfi og lýðheilsu, bæði í starfsemi Krónunnar en einnig í fræðslu og miðlun til viðskiptavina til að hjálpa þeim að lifa heilsusamlegum og sjálfbærum lífsstíl.“

Dómefnd Umhverfisverðlauna atvinnulífsis skipuðu Jóna Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og umhverfis hjá Landsvirkjun, Elma Sif Einarsdóttir, forstöðukona sjálfbærni og viðskiptaþróunar hjá Stika Solutions, og Sigríður Ósk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri umhverfismála hjá Hornsteini.

Umhverfisdagur atvinnulífsins er sameiginlegt verkefni SA, SI, SVÞ, SAF, SFS, SFF og Samorku.


Viðskiptablaðið, 24. nóvember 2025.