Fréttasafn



25. sep. 2020 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda

Lilja Ósk nýr formaður SÍK

Góð mæting var á rafrænan aðalfund Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SÍK, sem haldinn var í gær. Upphaflega stóð til að halda aðalfundinn á Kex Hostel og bjóða fundargestum upp á pallborðsumræður með dagskrárstjórum sjónvarpsstöðva landsins, RÚV, Símanum og Sýn en vegna þriðju bylgju kórónuveirufaraldursins var ákveðið að færa fundinn yfir á Zoom og fresta pallborðsumræðum þar til aðstæður leyfa. Fundarstjóri var Björg Ásta Þórðardóttir, yfirlögfræðingur SI.

Á fundinum fór Kristinn Þórðarson, fráfarandi formaður, yfir stöðu kvikmyndaiðnaðar á Íslandi og lagði hann ríka áherslu á að til mikils væri að vinna fyrir stjórnvöld að leggja áherslu á að styrkja iðnaðinn nú en mörg erlend kvikmyndafyrirtæki hafa sýnt því áhuga að koma til Íslands til þess að taka upp kvikmyndaverkefni vegna góðs árangurs í baráttunni við kórónuveiruna. Hins vegar sagði hann að til þess að tryggja komu þessara verkefna til landsins væri nauðsynlegt að hækka endurgreiðsluhlutfall vegna kvikmyndaverkefna. Þá fór Kristinn yfir störf stjórnar á liðnu ári en stjórnin vann ötult starf í þágu greinarinnar á árinu; barðist fyrir leiðréttingu á fjárheimildum vegna endurgreiðslna, gaf út skýrslu með hagtölum um kvikmyndagreinina, hannaði svokallaða B-sóttkví fyrir erlent kvikmyndafólk í samstarfi við Íslandsstofu og fleira.

Kristni voru þökkuð góð störf á þeim fjórum árum sem hann hefur sinnt formennsku en hann mun áfram sitja í stjórn félagsins. Á fundinum var kjörin ný stjórn. Lilja Ósk Snorradóttir var kjörin formaður stjórnar fyrst kvenna síðan SÍK sameinaðist Framleiðendafélaginu árið 2000 og varð til í þeirri mynd sem það starfar í dag.

Lilja Ósk er meðeigandi kvikmyndaframleiðslufyrirtækisins Pegasus og hefur verið framkvæmdastjóri þess frá árinu 2010. Lilja hefur yfir tuttugu ára reynslu úr kvikmyndabransanum og er með BSc gráðu í viðskiptafræði. Hún hefur framleitt og meðframleitt fjölda kvikmynda sem margar hverjar hafa unnið til kvikmyndaverðlauna um allan heim. Sem dæmi má nefna Bergmál, Arctic, Þresti og Sticks and Stones. Þá hefur Lilja einnig framleitt efni fyrir sjónvarp sem sýnt hefur verið á Íslandi og víðsvegar um Evrópu. Hjá Pegasus hefur Lilja komið að þjónustuverkefnum hér á landi fyrir nokkrar af vinsælustu sjónvarpsþáttaröðum í heimi; Game of Thrones, Succession og Fortitude.

Á fundinum voru einnig kjörnir í stjórn Hilmar Sigurðsson frá SagaFilm, Inga Lind Karlsdóttir frá Skot Productions, Kristinn Þórðarson frá Biggest Deal og Anton Máni Svansson frá Join Motion Pictures. Fyrir í stjórn sátu Guðbergur Davíðsson frá Ljósopi og Hlín Jóhannesdóttir frá Vintage Pictures.

Adalfundur-september-2020_2Fundarstjóri var Björg Ásta Þórðardóttir, yfirlögfræðingur SI, sem sat á skrifstofu SI í Borgartúninu og aðrir fundarmenn voru viðstaddir í Zoom.