Fréttasafn



19. jún. 2020 Almennar fréttir Nýsköpun

Nýtt tímarit SI afhent forseta Íslands og nýsköpunarráðherra

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, tóku á móti fyrstu eintökum nýs tímarits sem Samtök iðnaðarins hafa gefið út um nýsköpun. Með útgáfunni vilja samtökin leggja sitt af mörkum til að hvetja til nýsköpunar á öllum sviðum atvinnulífsins. Með því að styðja við umgjörð og hvata til nýsköpunar í nýjum og rótgrónum fyrirtækjum eflum við samkeppnishæfni Íslands til framtíðar. Í því ljósi hafa samtökin ráðist í útgáfu á nýju tímariti þar sem horft er á nýsköpun út frá fjölmörgum sjónarhornum. Hér er hægt að nálgast vefútgáfu tímaritsins sem er aðgengileg öllum landsmönnum.

Í tímaritinu sem er 128 síður að stærð er skyggnst inn í ótal greinar íslensks iðnaðar og dregnar fram fjölbreyttar hliðar nýsköpunar. Horft er til frumkvöðla og stjórnenda í nýjum atvinnugreinum eins og líftækni, gagnaversiðnaði og tölvuleikjaiðnaði. En einnig er rætt við þá sem stunda nýsköpun í rótgrónari iðnaði, líkt og matvælaiðnaði, áliðnaði og byggingariðnaði. Í tímaritinu kemur fram í grein aðalhagfræðings SI að fram til ársins 2050 þurfi að skapa 60 þúsund ný störf. Þá kemur fram sýn forseta Íslands og nýsköpunarráðherra á hvert mikilvægi nýsköpunar er fyrir Ísland, auk þess sem formaður SI og framkvæmdstjóri SI segja frá því hvers vegna samtökin leggja áherslu á nýsköpun og hvaða þýðingu það hefur að hvetja til sóknar á því sviði. Ritstjóri tímaritsins er Margrét Kristín Sigurðardóttir.

Myndina hér fyrir ofan tók Birgir Ísleifur þegar þegar forseta Íslands og nýsköpunarráðherra voru afhent fyrstu eintökin af tímariti Samtaka iðnaðarins í hugmynda- og nýsköpunarhúsinu Grósku í Vatnsmýrinni 16. júní. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Margrét Kristín Sigurðardóttir, ritstjóri tímaritsins, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.