Fréttasafn



15. nóv. 2021 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki

Reykjavíkurborg stefnir að útboði á LED-ljósavæðingu

Í Fréttablaðinu er greint frá því að Reykjavíkurborg stefni að útboði á LED-væðingu og raforkukaupum borgarinnar en Samtök iðnaðarins hafa skorað á Reykjavíkurborg að fara í útboð á viðhaldi, rekstri og LED-væðingu götulýsingar í kjölfar úrsskurðar með stjórnvaldssekt þar sem borginni er gert að bjóða út þjónustu við útskiptingu og uppsetningu LED-lampa í Reykjavík.

Í Fréttablaðinu er haft eftir formanni borgarráðs og oddvita Viðreisnar, Þórdísi Lóu Þórhallsdóttir, að um sé að ræða innkaup sem nemi hundruðum milljóna á ári og gætu sparað verulega rekstrarkostnað. Málið hafi verið rætt á fundi borgarráðs í vikunni þar sem farið var yfir úrskurð áfrýjunarnefndar útboðsmála frá því maí. 

Í fréttinni segir að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafi lagt í kjölfarið fram tillögu um að farið yrði í útboð. „Það er pólítískur vilji hjá meirihlutanum að fara í einu og öllu eftir úrskurði áfrýjunarnefndar útboðsmála og setja raforkukaup og LED-væðingu borgarinnar í útboð. Slík ákvörðun er í fullu samræmi við innkaupastefnu borgarinnar. Þarna erum við að tala um að bjóða út kaup á raforku sem borgin hefur keypt af sama aðila frá árinu 1921 þannig að þetta eru mikil tímamót.“

Fréttablaðið, 13. nóvember 2021.