Fréttasafn



6. okt. 2021 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Umhverfisviðurkenningar til Bláa lónsins og Aha

Umhverfisfyrirtæki ársins er Bláa lónið og umhverfisframtak ársins er Aha en forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson tilkynnt um viðurkenningarnar á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem fram fór í Hörpu í dag. Í valnefnd Umhverfisverðlauna atvinnulífsins sátu Bryndís Skúladóttir, formaður dómnefndar, Sigurður M. Harðarson og Gréta María Grétarsdóttir. Umhverfisdagur atvinnulífsins er árlegur viðburður en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

Bláa lónið

Bláa lónið nýtir jarðsjó, gufu og koltvísýring sem fellur til við framleiðslu á grænni orku frá nærliggjandi jarðvarmaveri til að skapa verðmæti. Sjálfbærni er kjarni og uppspretta Bláa Lónsins. Fyrirtækið hefur að leiðarljósi að fullnýta auðlindastrauma úr iðrum jarðar í upplifun gesta þess sem og í framleiðslu á vörum. Allur rekstur Bláa Lónsins er samofinn fjölnýtingu dýrmætra auðlindastrauma sem er einstakt á heimsvísu. Bláa Lónið hefur ávallt unnið að því að draga úr sóun og lágmarka umhverfisspor sitt. Fyrirtækið hefur markað sér skýra stefnu í umhverfismálum með megináherslu á að auka sjálfbæra nýtingu auðlindanna, draga úr plastnotkun og koltvísýringslosun. Bláa Lónið hefur kolefnisjafnað allan rekstur sinn síðan 2019 með ræktun þörunga og plöntun trjáa, m.t.t. eldsneytisnotkunar, orkunotkunar, rútuferða starfsfólks, meðhöndlun úrgangs og flugferða. Kolefnisbókhald fyrirtækisins er vaktað og plastspor þess kortlagt til að keyra áfram stöðugar umbætur í rekstri og draga úr áhrifum þess á umhverfið.

Sa_umhverfisdagurinn_2021-48Fulltrúar Bláa lónsins ásamt framkvæmdastjóra SA, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, með viðurkenninguna.

Aha

Aha er netverslun með heimsendingarþjónustu. Kolefnisspor heimaksturs er ein stærsta umhverfisáskorun starfseminnar. Frá 2015 hafa rafknúnir bílar verið notaðir og er nú allur bílafloti fyrirtækisins knúinn 100% rafmagni. Unnið er með heimsmarkmiðum sameinuðu þjóðanna og markvisst stuðlað að vistvænum innkaupum. Aha hefur unnið að tilraunum með flutninga á vörum með drónum sem er grundvöllur tilnefningar fyrirtækisins til umhverfisframtaks ársins. Drónaverkefni Aha minnkar umferð og dregur úr svifryksmengun.

 

Sa_umhverfisdagurinn_2021-47Fulltrúar Aha ásamt framkvæmdastjóra SA, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, með viðurkenninguna.