Fréttasafn



1. des. 2022 Almennar fréttir Félag ráðgjafarverkfræðinga Mannvirki Menntun

Yngri ráðgjafar með kynningu fyrir nemendur í HR

Fulltrúar Yngri ráðgjafa, sem er deild innan Félags ráðgjafarverkfræðinga, FRV, kynntu störf félagsins fyrir nemendum á fyrsta ári í iðn- og tæknifræði við Háskóla Reykjavíkur í dag. Það voru þau Jóhann Björn Jóhannsson, Bergrós Arna Sævarsdóttir og Hlín Vala Aðalsteinsdóttir sem sitja í stjórn Yngri ráðgjafa sem sáu um kynninguna og sögðu meðal annars frá starfsemi Yngri ráðgjafa, sínum daglegum og fjölbreyttu störfum hjá verkfræðistofunum og sýndu kynningarmyndband sitt sem útbúið var fyrr á árinu. Þau sögðu einnig frá að skipulagðar væru spennandi vísindaferðir á vegum deildar YR sem væru vel sóttar.

Góðar og skemmtilegar samræður mynduðust meðal áhugasamra nemenda og fulltrúa Yngri ráðgjafa að lokinni kynningu og ljóst að nemendurnir höfðu áhuga á störfum verkfræðistofa landsins. Þá sögðu fulltrúar Yngri ráðgjafa frá Instagram síðu sinni undir heitinu yngriradgjafar en hún inniheldur efni frá daglegum störfum ungra verkfræðinga og voru nemarnir hvattir til að fylgjast með síðunni.

Image00005_1669902338641Jóhann Björn Jóhannsson, Bergrós Arna Sævarsdóttir og Hlín Vala Aðalsteinsdóttir.

Image00001

Image00002_1669902394454