Samtök iðnaðarins telja að endurskoðuð drög að reglugerð um gagnsæi og háttsemi á heildsölumarkaði raforku taki ekki nægilegt mið af sérstöðu íslensks raforkumarkaðar og leggi of íþyngjandi skyldur á markaðsaðila. Samtökin eru því mótfallin gildistöku reglugerðarinnar í óbreyttri mynd. Þetta kemur fram í umsögn SI til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins.
Í umsögninni segir að þótt jákvæðar breytingar hafi verið gerðar á reglugerðardrögunum skorti enn fullnægjandi kostnaðar- og áhrifamat. Samtökin benda á að íslenski raforkumarkaðurinn sé einangraður og um 80% raforkunnar bundin í langtímasamningum við stórnotendur. Mikilvægt sé að regluverkið taki mið af þessum aðstæðum og geri greinarmun á stórnotendum sem kaupa raforku til eigin nota og aðilum sem stunda viðskipti á heildsölumarkaði.
SI leggja jafnframt áherslu á að upplýsingaskylda stórnotenda með langtímasamninga verði endurskoðuð og að íslenskt regluverk gangi ekki lengra en sambærilegar evrópskar reglur krefjast. Of íþyngjandi innleiðing geti skert samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja.
Samtökin telja fyrirhugaða gildistöku 1. janúar 2027 óraunhæfa og leggja til að gildistöku laganna og reglugerðarinnar verði frestað svo markaðsaðilar fái hæfilegan aðlögunartíma. Þá kalla samtökin eftir sérstöku samráði við stórnotendur áður en reglugerðin tekur gildi.
Hér er hægt að nálgast umsögnina í heild sinni.



