Beint í efni

Aðgangur stóriðju að end­ur­nýj­an­legri orku eitt stærsta framlag Íslands til loft­lags­mála

Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá SI, flutti erindi um sérstöðu Íslands og samkeppnishæfni stóriðju á Umhverfisdegi atvinnulífsins.

Guðný Hjaltadóttir

Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá SI, fjallaði um sérstöðu Íslands og samkeppnishæfni stóriðju á Umhverfisdegi atvinnulífsins. Í erindi hennar kom fram að að álver og kísilver hefðu staðið undir 17% af útflutningstekjum Íslands árið 2025 og samkeppnishæft raforkuverð væri grundvöllur samkeppnishæfni stórnotenda sem keppa á alþjóðamörkuðum. Hún sagði álver og kísilver framleiða vörur með eitt minnsta kolefnisspor í heimi og aðgangur þeirra að endurnýjanlegri orku væri því eitt stærsta framlag Íslands til loftlagsmála.

Guðný fór yfir að nýjustu tölur sýni að  ESB þurfi að mæta yfir 85% af þörf sinni  fyrir frumframleitt ál með innflutningi og að Ísland standi undir fjórðungi þess áls sem sé frumframleitt í Evrópu. Hún sagði frá auknu framboði álframleiðslu í heiminum, áherslu ESB á að styðja við framleiðslu innan Evrópu og áskoranir Evrópuregluverks sem væri ekki hannað út frá íslenskum raforkumarkaði.

Í erindi hennar kom fram mikilvægi þess að íslensk framleiðsla falli innan regluverks ESB um iðnaðarhraðal (Industrial Accelerator Act) og mikilvægt væri að losun af orku sem nýtt er í staðbundnum iðnaði verði hluti af reglugerð ESB um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis (CBAM) þannig að staðbundinn iðnaður sem noti endurnýjanlega orku njóti góðs af því. Þá greindi hún frá því að fríverslunarsamningar ESB við Indland og Indónesíu, sala upprunaábyrgða til iðnaðar sem noti jarðefnaeldsneyti og CBAM í óbreyttri mynd gæti haft þær afleiðingar að stóriðja sem losar í heildina meira sé í betri stöðu en stóriðja á Íslandi. Hún sagði að sala upprunaábyrgða til stóriðju og gagnavera sem noti jarðefnaeldsneyti hafi forskotið af íslenskum stórnotendum og dragi tæpast úr losun gróðurhúsalofttegunda. Þá sagði Guðný EES-samninginn vera lífæð landsins og hagsmunagæsla snemma í ferlinu skipti sköpum til að tryggja samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.