Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.
Fjölmennt var á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem fór fram á Hótel Reykjavík Grand síðastliðinn mánudag. Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ. Kristjana Arnarsdóttir var fundarstjóri og hófst dagskráin á opnunarávarpi Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóri SA, í salnum Háteig. Þá tók við samtal sem Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði með þátttöku Gunnars Þórs Péturssonar, forseta lagadeildar Háskólans í Reykjavík, Rögnu Árnadóttur, forstjóra Landsnets, og Álfheiði Ágústsdóttur, forstjóra Travel Connect og fyrrum forstjóra Elkem Ísland. Þau ræddu um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.
Viðurkenningar fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins voru afhentar en þrjú fyrirtæki höfðu hlotið tilnefningu; Elkem, Icelandair og Ístak. Að þessu sinni hlaut Icelandair nafnbótina Umhverfisfyrirtæki ársins 2026. Það var Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA, og Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, sem afhentu viðurkenningarnar.
Að því loknu tók við stutt kaffihlé og síðan gátu gestir valið um þrjár málstofur. Í málstofunum þremur var rætt um sérstöðu Íslands í ETS-kerfinu, innleiðingu umbúðaregluverks ESB í íslensku samhengi þar sem Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri hjá SI, flutti erindi um áhrif og áskoranir PPWR og í þriðju málstofunni var rætt um íslenska sérstöðu í orkumálum þar sem Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá SI, flutti erindi um sérstöðu Íslands og samkeppnishæfni stóriðju.
Að málstofum loknum var boðið upp á léttar veitingar og tengslamyndum.
Á Facebook SI er hægt að nálgast fleiri myndir frá deginum.
Myndir/BIG
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA.
Kristjana Arnarsdóttir var fundarstjóri.
Jón Ólafur Halldórsson, formaður SA.
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, Gunnar Þór Pétursson, forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík, Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Travel Connect og fyrrum forstjóri Elkem Ísland, og Ragna Árnadóttir, forstjóri Landsnets,
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI.
Í umræðum um innleiðingu umbúðaregluverks ESB í íslensku samhengi tóku þátt Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri hjá SI, sem stýrði samtalinu, Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, Ingólfur Friðriksson, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur í umhverfismálum Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, og Hafsteinn Snæland Grétarsson, sölu- og markaðsstjóri Danól.
Sigurður Helgi Birgisson, viðskiptastjóri hjá SI.
Í umræðum um sérstöðu Íslands í ETS-kerfinu tóku þátt Kristinn Már Reynisson, lögfræðingur SVÞ, sem stýrði samtalinu, Magnús Örn Agnesar Sigurðsson, skrifstofustjóri á skrifstofu loftslagsmála hjá Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, Guðrún Helga Heiðarsdóttir, sjálfbærnistjóri Icelandair, Agla Huld Þórarinsdóttir, sjálfbærnistjóri Eimskip, og Una Jóhannsdóttir, varaskrifstofustjóri á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Kristín Linda Árnadóttir, settur forstjóri Landsvirkjunar.
Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá SI.
Í umræðum um íslenska sérstöðu í orkumálum tóku þátt Aðalheiður Snæbjarnardóttir, sjálfbærnistjóri Landsbankans, sem stýrði samtalinu, Kristín Linda Árnadóttir, settur forstjóri Landsvirkjunar, Jón Ásgeirsson, skrifstofustjóri á skrifstofu orkumála hjá Umhverfis-, orku og loftlagsráðuneytinu, Hólmfríður Kristjánsdóttir, lögmaður Norðuráls, Eymundur Sigurðsson rafmagnsverkfræðingur hjá Lotu ehf., og Ríkarður S. Ríkarðsson, aðstoðarforstjóri Landsnets.