Samtök atvinnulífsins hafa samþykkt kjarasamninga við verkafólk og verslunarmenn fyrir tímabilið 2019-2022 sem skrifað var undir 3. apríl síðastliðinn. Rafræn atkvæðagreiðsla fór fram um samingana meðal aðildarfyrirtækja SA og voru þeir samþykktir með yfirgnæfandi meirihluta eða 98% greiddra atkvæða. Kosningaþátttaka var 74%. Atkvæðagreiðslan er í samræmi við samþykktir samtakanna, en í þeim segir að heildarkjarasamningar og stefnumarkandi samningar skuli bornir undir atkvæði félagsmanna í leynilegri atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðslan hófst 16. apríl og lauk kl. 11 í dag. Á vef SA er hægt að lesa nánar um kjarasamningana.
98% samþykktu nýja kjarasamninga
Aðildarfyrirtæki SA hafa samþykkt nýja kjarasamninga.

Tengt efni
Gagnaver á Íslandi eru ört vaxandi útflutningsgrein
Í nýrri greiningu SI kemur fram að gagnaver séu ein af hraðvaxtargreinum íslensks útflutnings. Horfur eru á að útflutningstekjur gagnavera og tengdrar starfsemi verði um 72 milljarðar króna í ár samanborið við 41,4 milljarða króna í fyrra.

Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Halda þarf sérstöðu Íslands á lofti við mótun umhverfisregluverks í Evrópu
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði umræðum á Umhverfisdegi atvinnulífsins um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.
