Beint í efni

Að­vent­u­gleði kvenna í iðnaði á fimmtu­dag­inn

Nú styttist í Aðventugleði kvenna í iðnaði sem Samtök iðnaðarins bjóða til fimmtudaginn næstkomandi 29. nóvember kl. 17-19 á Vox Club.

Aðventugleði kvenna í iðnaði

Nú styttist í Aðventugleði kvenna í iðnaði sem Samtök iðnaðarins bjóða til fimmtudaginn næstkomandi 29. nóvember kl. 17-19 á Vox Club, Hilton Reykjavík Nordica. Markmiðið er að kynnast, spjalla og sýna drifkraftinn sem konur í iðnaði búa yfir. Allar konur í aðildarfyrirtækjum SI eru boðnar velkomnar.

Hér er hægt að skrá sig.

Fram koma

  • Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI
  • Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
  • Margrét Júlíana Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri og annar af tveimur stofnendum tölvuleikjafyrirtækisins Rosamosa
  • Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, söngkona

Boðið er upp á léttar veitingar.

Bodskort-2018-lokautgafa

Aðventugleði kvenna í iðnaði á fimmtudaginn - Samtök Iðnaðarins