Ársfundur Samáls verður 9. maí kl. 8.30-10.00 í Kaldalóni í Hörpu. Horft verður til framtíðar og verða umhverfis- og öryggismál í brennidepli. Um leið verður þess minnst að hálf öld er liðin frá því álframleiðsla hófst á Íslandi. Fundarstjóri er Sólveig Bergmann. Dagskrá 8:00 - Morgunverður.
8:30 - Ársfundur. · Staða og horfur í áliðnaði - Magnús Þór Ásmundsson stjórnarformaður Samáls og forstjóri Alcoa Fjarðaáls. · Ávarp - Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra. · Verðmætasköpun í hálfa öld - Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins. · Nýsköpun í öryggismálum - Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri AMS. · Fókusinn er á umhverfið - Steinunn Dögg Steinsen framkvæmdastjóri öryggis- og umhverfismála Norðuráli. · Stefnumótun út frá heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna - Hrund Gunnsteinsdóttir framkvæmdastjóri Festu. · Endurvinnsla áls og hringrásarhagkerfið - Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Samáls. 10:00 - Kaffispjall að loknum fundi. Fundargestum gefst kostur á að skoða nýjan rafbíl úr frumframleiddu og endurunnu áli, Jaguar I-Pace. Þá gefst kostur á að spreyta sig á öryggisþjálfun í sýndarveruleika í boði Statnett. Boðið verður upp á morgunverð og að fundi loknum verður kaffispall og veitingar. Aðgangur er öllum opinn. Hér er hægt að skrá sig.
Ársfundur Samáls
Ársfundur Samáls
Ársfundur Samáls verður 9. maí kl. 8.30-10.00 í Kaldalóni í Hörpu.

Tengt efni
SI leggja áherslu á óhindraðan aðgang að innri markaðnum og mótvægisaðgerðir vegna CBAM
Í umsögn SI um drög að frumvarpi til laga um aðlögunarkerfi við landamæri vegna kolefnis, CBAM, hvetja samtökin stjórnvöld til að vera virk í hagsmunagæslu sinni gagnvart ESB.

SI fagna endurskoðun mannvirkjalaga en vilja úrbætur á frumvarpi
Í umsögn SI kemur fram að samtökin fagni fyrirhugaðri endurskoðun mannvirkjalöggjafarinnar en áður en frumvarpið verði lagt fram þurfi að liggja fyrir heildstætt mat á áhrifum breytinganna.

Gagnaversiðnaður á Íslandi á fleygiferð
Rætt er við Bergþóru Halldórsdóttur, yfirlögfræðing og forstöðumann stefnumótunar hjá Borealis Data Centers og stjórnarmann í SI, í Morgunblaðinu um gagnaver á Íslandi.
