Beint í efni

Árshóf SI

Hátt í 400 manns komu saman á árshófi SI sem fór fram í Silfurbergi í Hörpu 10. mars.

Árshóf SI

Góð stemning var á árshófi SI sem fór fram í Silfurbergi í Hörpu föstudaginn 10. mars þar sem hátt í 400 komu saman. Árshóf SI var síðast haldið 2019 og seldust því miðar á hófið strax upp.

Í upphafi árshófsins var boðið upp á fordrykk undir tónlist DJ Dóru Júlíu. Þegar inn í Silfurbergs-salinn var komið bauð Árni Sigurjónsson, formaður SI, gesti velkomna. Veislustjórar voru Selma Björnsdóttir og Jón Jónsson. Listamennirnir Villi Neto, Mugison og hljómsveitin Flott með Vigdísi Hafliðadóttur í fararbroddi skemmtu gestum. Í lokin lék Stuðlabandið fyrir dansi.

Á Facebook SI er hægt að nálgast fleiri myndir.

Myndir: BIG

Árshóf SI - Samtök Iðnaðarins