Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Bændasamtök Íslands, Neytendasamtökin, Samtök verslunar og þjónustu og Samtök iðnaðarins undirrituðu í dag samkomulag um að gera gangskör í því að bæta merkingar á matvælum og tryggja þannig betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif þeirra. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Undirritunin fór fram í Melabúðinni. Skipaður verður samráðshópur með fulltrúum neytenda, bænda og verslunar og er hlutverk hans að ráðast í átaksverkefni um merkingar og hvernig betur megi upplýsa neytendur og fyrirtæki um réttindi og skyldur á skýran og einfaldan hátt, í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar. Verkefnið er tímabundið í eitt ár og að þeim tíma liðnum verður árangurinn metinn og ákvörðun tekin um framhaldið. Á myndinni eru talið frá vinstri, Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ, Sindri Sigurgeirsson, formaður Bændasamtakanna, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, og Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Einnig sést í Friðrik Ármann Guðmundsson á bak við búðarborðið í Melabúðinni.
Bæta á merkingar á matvælum
Bæta á merkingar á matvælum
Bæta á merkingar á matvælum og tryggja þannig betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif þeirra.

Tengt efni
Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Halda þarf sérstöðu Íslands á lofti við mótun umhverfisregluverks í Evrópu
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði umræðum á Umhverfisdegi atvinnulífsins um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.

Aðgangur stóriðju að endurnýjanlegri orku eitt stærsta framlag Íslands til loftlagsmála
Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá SI, flutti erindi um sérstöðu Íslands og samkeppnishæfni stóriðju á Umhverfisdegi atvinnulífsins.
