„Samhljómur er ekki samkomulag um markmið. Hann er samkomulag um framkvæmd sem skilar ávinningi.“ Þetta sagði Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, meðal annars í erindi sínu á Loftslagsdeginum þar sem hann fjallaði um mikilvægi þess að breyta sundurlausnum í samhljóm, samræma ákvarðanir um innviði, loftslagsaðlögun og græn umskipti til að styrkja viðnámsþrótt samfélagsins og skapa ný tækifæri.
Sigurður sagði að Ísland ætti góða sögu að segja af framförum sem hefðu náðst þrátt fyrir ágreining. Uppbygging hitaveitu væri gott dæmi um hvernig framsýnar ákvarðanir hefðu aukið orkuöryggi, dregið úr losun og skapað verðmæti. Á sama tíma blasti við að uppsöfnuð viðhaldsþörf innviða næmi um 680 milljörðum króna og að brýnt væri að búa samfélagið undir breyttar aðstæður vegna loftslagsbreytinga.
Hann benti á að þótt markmið Íslands um full orkuskipti væru skýr hefðu ákvarðanir um nýja orkuöflun tafist árum saman. Það væri dæmi um sundurlausn, þegar markmið og ákvarðanir um orku, innviði, skipulag og fjárfestingar færu ekki saman. „Við höfum sett okkur markmið um full orkuskipti. Samt flytjum við enn inn olíu fyrir hátt í 200 milljarða króna á ári og ákvarðanir um nýja orkuöflun hafa tafist árum saman. Markmiðið er skýrt en ákvarðanirnar fylgja ekki.“
Sigurður nefndi varnargarðana á Reykjanesi sem dæmi um árangur sem næðist þegar stjórnvöld, sveitarfélög og atvinnulíf stilltu saman strengi sína. Þar hefðu ákvarðanir verið teknar hratt, ábyrgð skýr og öflugur iðnaður gegnt lykilhlutverki í framkvæmdinni.
Í lok erindisins hrósaði Sigurður ríkisstjórninni, með umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra í broddi fylkingar, fyrir að vinna að því að láta lausnirnar vinna saman og breyta sundurlausn í samhljóm. Hann hvatti jafnframt alla til að huga að eigin hlutverki í loftslagsmálum og mikilvægi þess að gera fleirum kleift að taka þátt og eiga hlutdeild. „Hvert og eitt okkar þarf að hugsa hvernig við getum breytt sundurlausn í samhljóm.“



