Beint í efni

Bylting í at­vinnu­lífs­töl­fræði

Hagstofan hefur breytt framsetningu á tölfræði sem gerir kleift að fá betri mynd af einstökum atvinnugreinum.

Breytingar á ýmsum sköttum og gjöldum

Það hefur orðið bylting í fyrirtækja- og atvinnulífstölfræði eftir að Hagstofa Íslands hóf að setja fram tölfræðiupplýsingar með nýjum hætti. Vinna við þetta hefur staðið yfir í nokkur ár og hafa Samtök iðnaðarins stutt við bakið á Hagstofunni við þetta verkefni og þrýst á að þessu verkefni væri ýtt úr vör enda mikið hagsmunamál fyrir atvinnulífið.

Nú verður í fyrsta skipti hægt að sjá nákvæmt rekstrar- og efnahagsyfirlit einstakra atvinnugreinahópa allt aftur til ársins 2002. Byggt er á upplýsingum úr skattframtölum fyrirtækja og eru gögnin því afar áreiðanleg.

Gögn um tækni- og hugverkaiðnaðinn hafa nú verið sett fram með nýstárlegum hætti á vef Hagstofunnar en þar hefur verið tekinn saman hópur fyrirtækja sem teljast til tækni- og hugverkaiðnaðar. Allar tölur eru á föstu verðlagi þannig að gögnin eru samanburðarhæf. Hægt er að fá sambærileg gögn fyrir nánast allar atvinnugreinar. Gögnin eru sett fram í formi hefðbundinna rekstrar- og efnahagsreikninga og því ætti það að vera nokkuð kunnuglegt. Í dæmi tækni- og hugverkaiðnaðarins kemur fram að rekstrartekjur hafa aukist um 74% á árabilinu 2002 og 2014 og fjöldi starfsmanna hefur aukist um 59% á sama tíma.

Á vef Hagstofunnar er hægt að nálgast gögnin.

Tækni- og hugverkaiðnaður 2002 2008 2014 Fjöldi fyrirtækja 1522 2150 2425 Fjöldi launþega NA 11110 11612 Rekstrartekjur 148156 219865 258565 Vöru og hráefniskaup -38755 -82232 -93771 Launakostnaður -60549 -74480 -83179 Annar rekstrarkostnaður -40263 -50319 -58179 Fyrningar -19056 -9845 -14242 Hagnaður fyrir fjármagnsliði (EBIT) -10463 2990 9194 Fjármagnsliðir -2165 -69498 -5934 Óreglulegir liðir -1307 -16083 -1827 Hlutdeild í afkomu dótturfélaga NA -18870 7377 Hagnaður fyrir skatt -13936 -101462 8811 Tekjuskattur -1448 2376 -2429 Hagnaður skv. ársreikningi -15384 -99086 6381 Varanlegir rekstrarfjármunir 78406 94267 101876 Óefnislegar eignir 9110 117917 71743 Eignarhlutir í öðrum félögum 10970 134930 151414 Birgðir 10453 13381 15345 Viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur 47160 297340 107901 Handbært fé og verðbréf 27299 38789 29179 Aðrar eignir 678 1681 3725 Langtímaskuldir 61172 408058 174007 Skammtímaskuldir 51720 118685 63956 Eigið fé 71184 171562 243220

Bylting í atvinnulífstölfræði - Samtök Iðnaðarins