Beint í efni

Félag pípu­lagn­inga­meist­ara sendir fjölmarga til Grindavíkur

Félag pípulagningameistara hefur sent fjölmarga pípara til Grindavíkur í gær og í dag.

Félag pípulagningameistara sendir fjölmarga til Grindavíkur

Félag pípulagningameistara sendi tæplega 50 pípara í gær til Grindavíkur til að koma hita á húsin þar. Í dag verða um 30 pípara sem fara til Grindavíkur. Varúðar er gætt og er ekki farið inn í hús sem eru á skilgreindu hættusvæði.

Hér eru nokkrar myndir frá gærdeginum frá Félagi pípulagningameistara.