Umboð verkefnisstjórnar sem unnið hefur að áfangaskýrslu um mótun matvælastefnu fyrir Ísland frá því í ágúst 2018 verður endurnýjað og fjölgað í verkefnisstjórninni. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðs Íslands þar sem segir að jafnframt verði sett á fót sérstök ráðherranefnd til að fjalla um matvælastefnu fyrir Ísland enda muni matvælaframleiðsla verða eitt af stóru viðfangsefnum stjórnmálanna í framtíðinni og varðar mótun stefnunnar málefnasvið fjölmargra ráðuneyta. Fast sæti eigi forsætisráðherra, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, umhverfis- og auðlindaráðherra, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra og heilbrigðisráðherra. Aðrir ráðherrar taki sæti á fundum nefndarinnar eftir því sem tilefni er til. Þetta var samþykkt á ríkisstjórnarfundi síðastliðinn föstudag. Verkefnisstjórnin er skipuð fulltrúum ráðherra, Bændasamtaka Íslands, Samtaka iðnaðarins, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtökum verslunar- og þjónustu og Neytendasamtökunum. Verkefnisstjórnin skilaði ráðherra áfangaskýrslu í lok mars 2019. Á vef Stjórnarráðs Íslands er hægt að lesa nánar um matvælastefnu fyrir Ísland.
Fjölgað í verkefnastjórn og ráðherranefnd um matvælastefnu
Fjölgað verður í verkefnastjórn um mótun matvælastefnu fyrir Ísland og ráðherranefnd sett á fót.

Tengt efni
Gagnaverin styrkja útflutning og skapa verðmæt störf
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Speglinum á Rás 1 um starfsemi gagnavera á Íslandi.

Gagnaver á Íslandi renna styrkari stoðum undir útflutningstekjur hagkerfisins
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um mikinn vöxt útflutningstekna gagnavera á Íslandi.

Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.
