Beint í efni

Fjölmennt á fræðslu­fundi um aukna þjónustu Veitna

Samtök rafverktaka og Félag löggiltra rafverktaka stóð fyrir fundi um aukna þjónustu Veitna við löggilta rafverktaka.

Fjölmennt á fræðslufundi um aukna þjónustu Veitna

Fjölmenni var á fræðslufundi Samtaka rafverktaka, SART, og Félags löggiltra rafverktaka, FLR, þar sem fulltrúar Veitna kynntu aukna þjónustu við löggilta rafverktaka. Fundurinn var haldinn hjá Rafmennt að Stórhöfða 27. Egill Jónsson, hópstjóri mæla- og notandaþjónustu Veitna, flutti erindi en auk hans sátu Skúli Skúlason, Sigurjón Kr. Sigurjónsson og Daníel Leó Ólason fyrir svörum. Á næstu dögum verður efni fundarins sett á innri vef SART fyrir félagsmenn.

Fjölmennt á fræðslufundi um aukna þjónustu Veitna - Samtök Iðnaðarins