Beint í efni

Fjölmennt á ráðstefnu SART og SI um framtíð orkumála

Fjölmennt var á ráðstefnu SART og SI um framtíð orkumála sem fór fram á Grand Hótel Reykjavík.

Fjölmennt á ráðstefnu SART og SI um framtíð orkumála

Fjölmennt var á ráðstefnu Samtaka rafverktaka, SART og Samtaka iðnaðarins um orkumál sem fór fram föstudaginn 10. mars á Grand Hótel Reykjavík. Á ráðstefnunni var farið yfir stöðu og þörf í orkuinnviðum á Íslandi í ljósi loftslagsmarkmiða og var gefin innsýn í nýja tækni vindorku og sólarorku og horft til þess hvaða færni fagfólk þarf að búa yfir í framtíðaruppbyggingu orkuinnviða. Fundarstjóri var Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART.

Dagskrá

  • Opnunarávarp Hjörleifur Stefánsson, formaður SART
  • Staða orkuinnviða Lárus M. K. Ólafsson, sérfræðingur í orku- og umhverfismálum hjá SI
  • Aukin orkunýting Eymundur Sigurðsson, rafmagnsverkfræðingur M.Sc
  • Beislun vindorku á Íslandi - tækifæri og áskoranir Kristinn Arnar Ormsson, raforkuverkfræðingur M.Sc
  • Sólarorka Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborgar
  • Orkan í fólkinu okkar Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, stjórnarformaður Rafal
  • Umræður Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, stýrir umræðum með þátttöku eftirtaldra: Hannes Garðarsson, skrifstofu-, öryggis- og gæðastjóri Rafeyri, Þór Pálsson, framkvæmdastjóri Rafmenntar, Egill Jóhannsson, forstjóra Brimborgar og Lárus M.K. Ólafsson, sérfræðingur í orku- og umhverfismálum hjá SI
  • Samantekt og lokaorð Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI

Á Facebook SI er hægt að nálgast fleiri myndir frá ráðstefnunni.

Myndir: BIG

Hannes Garðarsson, skrifstofu-, öryggis- og gæðastjóri Rafeyri, Egill Jóhannsson, forstjóra Brimborgar, Lárus M.K. Ólafsson, sérfræðingur í orku- og umhverfismálum hjá SI, og Þór Pálsson, framkvæmdastjóri Rafmenntar.