Beint í efni

Formaður FBE hlýtur gullmerki

Formaður Félags blikksmiðjueigenda hlaut gullmerki félagsins á árshátíð sem haldin var í Tallin í Eistlandi.

Formaður FBE hlýtur gullmerki

Sævar Jónsson, formaður Félags blikksmiðjueigenda, FBE, hlaut gullmerki félagsins af hálfu stjórnar fyrir vel unnin störf í þágu félagsins. Gullmerkið var afhent á árshátíð félagsins sem haldin var í Tallin í Eistlandi. Árshátíðin var vel sótt af félagsmönnum og mökum. Nokkur fjöldi nýrra félagsmanna var á árshátíðinni.

Mynd6_1683630847522
Stefán Þ. Lúðvíksson, stjórnarmaður FBE, og Sævar Jónsson, formaður FBE.

Nýir félagsmenn ásamt mökum, ásamt Stefáni Þ. Lúðvíkssyni, stjórnarmanni FBE, talið frá vinstri, Ágúst Friðriksson úr Blikkval, Sverrir Jóhann Jóhannsson úr Blikklausnum, Jóna Dís Jóhannsdóttir, Sverrir Fannar Gestsson úr Blikklausnum, Júlíana Rose Júlíusdóttir, Sveinn Finnur Helgason úr Blikksmiðju Ágústs Guðjónssonar og Guðrún Kristín Ragnarsdóttir.