Framfarasjóður Samtaka iðnaðarins hefur veitt tveimur verkefnum styrki samtals að upphæð 5,5 milljónir króna. Verkefnin sem hljóta styrki úr Framfarasjóði SI eru:
Málmur og Tækniskólinn hljóta 3,5 milljóna króna styrk til að vinna að gerð námskrár þannig að Tækniskólanum verði gert kleift að bjóða upp á námsbraut í kælitækni. Styrkþegar munu meta hvaða fög Tækniskólinn þarf sérstaklega að koma á til þess að námsbrautin verði samanburðarhæf við önnur Norðurlönd. Ekki hefur verið boðið upp á námið hérlendis og hafa áhugasamir nemendur þurft að sækja námið erlendis.
Háskóli Íslands hlýtur 2 milljóna króna styrk vegna NordYk, ráðstefnu norrænna samtaka um rannsóknir á starfsmenntun sem fer fram í júní næstkomandi. Markmið ráðstefnunnar er efling menntunar fyrir atvinnulífið með áherslu á iðn-, verk- og tækninám þar sem varpað verður ljósi á mikilvægi þessa náms í samfélaginu. Ráðstefnan samanstendur af málstofum og erindum þar sem kynnt verða rannsóknar- og þróunarverkefni tengd starfsnámi.
Við val á verkefnunum er horft til þess að þau efli menntun í iðn-, verk- og tækninámi, að um sé að ræða nýsköpun sem styrki framþróun í iðnaði og að þau leiði til framleiðniaukningar. Sjóðurinn var stofnaður árið 2016 í þeim tilgangi að styðja við og þróa framfaramál tengd iðnaði.
Sjóðnum bárust 10 umsóknir að þessu sinni.
Mynd/BIG
Frá afhendingu styrkjanna í Húsi atvinnulífsins. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Víglundur Laxdal Sverrisson, skólastjóri skipstjórnar- og véltækniskólans innan Tækniskólans, Elsa Eiríksdóttir, dósent við Háskóla Íslands, Daníel Óli Óðinsson, formaður Málms, Árni Sigurjónsson, formaður SI, og Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI.
Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Víglundur Laxdal Sverrisson, skólastjóri skipstjórnar- og véltækniskólans innan Tækniskólans, Daníel Óli Óðinsson, formaður Málms, Árni Sigurjónsson, formaður SI, og Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI.




