Beint í efni

Fulltrúar FÍG og SI sátu ís­lenskt-ind­verskt við­skipta­þing

Fulltrúar Félags íslenskra gullsmiða og Samtaka iðnaðarins sátu íslenskt-indverskt viðskiptaþing.

Fulltrúar FÍG og SI sátu íslenskt-indverskt viðskiptaþing

Formaður Félags íslenskra gullsmiða, FÍG, Arna Arnardóttir, og viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, Erla Tinna Stefánsdóttir, voru viðstaddar íslenskt-indverskt viðskiptaþing sem haldið var á Grand Hótel Reykjavík fyrir skömmu. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, opnaði þingið.

Þingið er samstarfsverkefni Indo-Icelandic Business Association (IIBA), Business Iceland og Icelandic India Trade Council. Um 40 aðilar frá Indlandi voru á þinginu frá ýmsum atvinnugreinum líkt og gull- og skartgripasmíði, textíl, ferðaþjónustu, fjártækni, lögfræði, heilbrigðissviði, orkumálum og menntamálum.



Fulltrúar FÍG og SI sátu íslenskt-indverskt viðskiptaþing - Samtök Iðnaðarins