Samtök atvinnulífsins, aðildarsamtök ásamt Viðskiptaráði Íslands standa fyrir fjarfundi með Sigurði Inga Jóhannssyni, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, þar sem stjórnendum aðildarfélaga gefst kostur á að ræða við ráðherrann um stöðu íslensks atvinnulífs og aðgerðir stjórnvalda. Fundurinn fer fram næstkomandi miðvikudag kl. 11.00.
Um er að ræða klukkustundarfund í gegnum Zoom þar sem félagsmönnum gefst færi á að senda ráðherra spurningar, milliliðalaust, í gegnum spjallþráð forritsins.
Stjórnendur aðildarfélaga fá hlekk á fundinn sendan í tölvupósti.
Fundur með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
Rafrænn upplýsingafundur með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra verður haldinn næstkomandi miðvikudag.

Tengt efni
Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Halda þarf sérstöðu Íslands á lofti við mótun umhverfisregluverks í Evrópu
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði umræðum á Umhverfisdegi atvinnulífsins um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.

Aðgangur stóriðju að endurnýjanlegri orku eitt stærsta framlag Íslands til loftlagsmála
Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá SI, flutti erindi um sérstöðu Íslands og samkeppnishæfni stóriðju á Umhverfisdegi atvinnulífsins.
