Beint í efni

Fundur um Tækni­þró­un­ar­sjóð

SI og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð miðvikudaginn 15. ágúst næstkomandi.

Kynningarfundur með fulltrúum Tækniþróunarsjóðs

Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð miðvikudaginn 15. ágúst næstkomandi kl. 8.30-10 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, fundarsalnum Kviku á 1. hæð. Boðið verður upp á léttan morgunverð. Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Dagskrá

Sigurður Björnsson, sviðsstjóri á rannsókna- og nýsköpunarsviði Rannís, gerir grein fyrir:

  • Styrkjaflokkum Tækniþróunarsjóðs
  • Skattfrádrætti vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar
  • Reglugerð um skattaívilnun til erlendra sérfræðinga

Reynsla félagsmanna SI af umsóknaferli Tækniþróunarsjóðs

  • Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri, eTactica
  • Jón Atli Magnússon, vöruþróunarstjóri, Hampiðjunni

Umræður


Taeknithrounarsjodur_2018