Félag pípulagningameistara, FP, og Samtök iðnaðarins buðu félagsmönnum FP til kynningarfundar 19. maí á Hilton Reykjavík Nordica. Góð mæting var á fundinn þar sem fulltrúar Samtaka iðnaðarins og Samtaka atvinnulífsins kynntu starfsemi beggja samtaka og í kjölfarið var efnt til umræðna. Tilefni fundarins var kosning félagsmanna FP um inngöngu í SI og SA sem hófst föstudaginn 20. maí í samræmi við ályktun síðasta aðalfundar FP.
Góð mæting á fund FP og SI
Góð mæting á fund FP og SI
Félag pípulagningameistara, FP, og Samtök iðnaðarins, SI, buðu félagsmönnum FP til kynningarfundar.


Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI. 
Kristján Daníel Sigurbergsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviðí SI og framkvæmdastjóri Samtaka rafverktaka. 
Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðssviðs SA. 
Jón Sigurðsson, formaður Meistarafélags húsasmiða. 
Árni Sigurjónsson, formaður SI. 



