Góð mæting var á málþing Ljósmyndarafélags Íslands sem haldið var í tilefni 95 ára afmælis félagsins. Málþingið fór fram í Björtuloftum í Hörpu síðastliðinn föstudag. Laufey Ósk, formaður Ljósmyndarafélags Íslands, opnaði málþingið. Á málþinginu voru flutt fjögur erindi. Kári Sverriss fór yfir leiðir að markmiðum, Kristín María Stefánsdóttir flutti erindi með yfirskriftinni Að vera ekki allra. Gunnar Svanberg fór yfir hvernig framleiðsla fyrir myndbanka fer fram og Rán Bjargardóttir fjallaði um nýburaljósmyndun.
Jóhanna Vigdís Arnardóttir hjá Samtökum iðnaðarins var fundarstjóri.
Myndir/Guðmundur Viðarsson.













