Beint í efni

Gull­smíða­meist­arar heimsækja nemendur

Nemendur í gull- og silfursmíði buðu gullsmíðameisturum til sín í Tækniskólann.

Gullsmíðameistarar heimsækja nemendur

Nemendur í gull- og silfursmíði við Tækniskólann bjóða á hverri önn gullsmíðameisturum í Félagi íslenskra gullsmiða og gestum til morgunverðar og sýna um leið hvað þau eru að fást við í námi sínu. Með þessu móti vill Tækniskólinn styrkja tengsl skólans og atvinnulífsins. Á hverju ári eru 8 nemendur teknir inn á gull- og silfursmíðabrautina eftir að hafa sent inn ferilskrá og möppu sem sýnir helstu verk nemandans. Að þessu sinni var boðið til morgunverðarins mánudaginn 24. október.

Sjá myndir frá morgunverðarboðinu á Facebook síðu SI.

Gullsmíðameistarar heimsækja nemendur - Samtök Iðnaðarins