Beint í efni

Gullsmiðir og snyrti­fræð­ingar á fjölmennri sýningu

Félag íslenskra gullsmiða og Félag íslenskra snyrtifræðinga voru þátttakendur á sýningunni Lifandi heimili 2019.

Gullsmiðir og snyrtifræðingar á fjölmennri sýningu

Það var mikill fjöldi gesta sem lagði leið sína í Laugardalshöllina á sýninguna Lifandi heimili 2019 sem fór fram um síðustu helgi. Þar voru um 80 fyrirtæki sem kynntu vörur sínar og þjónustu og gafst landsmönnum tækifæri til að kynna sér allt það nýjasta á markaðnum. Meðal þeirra sem voru á sýningunni voru tvö af aðildarfélögum SI, Félag íslenskra gullsmiða og Félag íslenskra snyrtifræðinga.

Haraldur Guðjónsson Thors, ljósmyndari, var á staðnum og smellti af nokkrum myndum.

Gullsmiðir og snyrtifræðingar á fjölmennri sýningu - Samtök Iðnaðarins