Lovísa Halldórsdóttir og Unnur Eir Björnsdóttur gullsmiðir hanna bleiku slaufuna í ár en Félag íslenskra gullsmiða og Krabbameinsfélagið halda samkeppni árlega um val slaufunnar. Bleika slaufan 2016 táknar stuðningsnetið sem mikilvægast er þeim konum sem greinast með krabbamein - fjölskylduna og samfélagið.
Bleika slaufan er árlegt átaksverkefni Krabbameinsfélagsins. Allur ágóði af sölu slaufunnar í ár rennur til kaupa á endurnýjuðum tækjabúnaði sem er ætlaður til leitar að brjóstakrabbameini.





