Beint í efni

Heimsóttu fimm húsgagna- og inn­rétt­inga­fram­leið­end­ur

Framkvæmdastjóri SI og sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI heimsóttu fimm húsgagna- og innréttingaframleiðendur í vikunni.

Heimsóttu fimm húsgagna- og innréttingaframleiðendur

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, hittu húsgagna- og innréttingaframleiðendur í vikunni. Um er að ræða aðildarfyrirtækin GÁ, Sýrusson, AXIS, Á. Guðmundsson og Agustav.

Íslensk húsgagnaframleiðsla og hönnun prýðir fyrirtæki, stofnanir og heimili um allt land. Fyrirtækin smíða eftir séróskum viðskiptavina sinna auk þess að framleiða eftir eigin hönnun. Í samtölum við forsvarsmenn fyrirtækjanna kom meðal annars fram að nokkuð væri um útflutning en það væri ennþá óplægður akur. Rætt var um góðan árangur Skandinava á þessu sviði þar sem fylgt væri skýrri sýn og markvissri stefnu að gera innlenda húsgagna- og innréttingaframleiðslu sýnilega. Þar er einkennandi að innlend hönnun á sinn sess hjá hinu opinbera, í fyrirtækjum og á heimilum. Sama megi segja um sýnileika innlendrar framleiðslu bæði í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Þá var samhljómur í því meðal fyrirtækjanna fimm að gæði væri það sem einkenndi íslenska húsgagna- og innréttingaframleiðslu og verðin væru vel samkeppnishæf miðað við gæðin.

Á myndinni fyrir ofan er Guðmundur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Á. Guðmundsson og formaður Félags húsgagna- og innréttingaframleiðenda, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.

Heimsóttu fimm húsgagna- og innréttingaframleiðendur - Samtök Iðnaðarins