Beint í efni

SI fagna afnámi banns við kaupréttum stjórn­ar­manna

Í umsögn helstu samtaka í atvinnulífinu er því fagnað að afnema eigi bann við kaupréttum til stjórnarmanna.

Samtök iðnaðarins (SI) fagna því að í nýju frumvarpi til breytinga á hlutafélagalögum sé lagt til að afnema bann við kaupréttum til stjórnarmanna. Breytingin er mikilvægt skref í að samræma íslenskt regluverk við hin Norðurlöndin og styrkja samkeppnishæfni atvinnulífsins.

Í sameiginlegri umsögn SI, Viðskiptaráðs og annarra helstu samtaka í atvinnulífinu er frumvarpinu fagnað, en umsögnin var lögð fram við meðferð málsins á Alþingi.

Mikilvægt fyrir hugverkaiðnaðinn

Íslensk tækni- og hugverkafyrirtæki keppa á alþjóðlegum markaði um sérhæft stjórnarfólk, reynslu og tengslanet. Kaupréttir og aðrir hlutabréfatengdir hvatar eru víða notaðir til að laða að þessa þekkingu og stuðla að langtímaverðmætasköpun.

SI hafa lengi bent á að íslenska regluverkið hafi verið of þröngt miðað við nágrannalöndin og hamlað vexti sprota- og hugverkafyrirtækja. Í sérstöku erindi SI til atvinnuvegaráðherra var einmitt kallað eftir þessari breytingu á lögunum.

Gagnsæi í stað fortakslausra takmarkana

Með breytingunni er horfið frá fortakslausum bönnum og meiri áhersla lögð á gagnsæi, góða stjórnarhætti og aðhald hluthafa. Samtökin benda þó á í umsögninni að útfærsla ákvæðanna þurfi að vera skýr og fyrirsjáanleg og að ekki verði gengið lengra en nauðsynlegt er við innleiðingu Evrópureglna.

SI telja þessa breytingu stórt heillaskref. Skýrari og samkeppnishæfari umgjörð um kauprétti mun styðja við vöxt hugverkaiðnaðar, auka verðmætasköpun og styrkja stöðu Íslands í alþjóðlegri samkeppni um hæfileika og fjármagn.

Hér  er hægt að nálgast umsögnina í heild sinni.

Aldrei hafa fleiri sótt Iðnþing Samtaka iðnaðarins. Hátt í 900 skráðu sig og fylltist Silfurberg í Hörpu fimmtudaginn 5. mars. Auk þess horfðu yfir 2.300 á beina útsendingu frá þinginu.

Finnum samhljóminn var yfirskrift þingsins þetta árið. Við byggjum öll okkar lífskjör á framleiðslu verðmæta. Aukið spennustig á alþjóðasviðinu og breytt aðgengi að erlendum mörkuðum kalla á sterka hagsmunagæslu Íslands. Óvissa og auknar þrengingar í efnahagsmálum hér á landi krefjast þess að heimatilbúnum hindrunum verði rutt úr vegi í þágu samfélagsins alls. Með því að stilla saman strengina getum við skapað samhljóm um nauðsynlegar umbætur.

Hér er hægt að nálgast allt efni þingsins; myndbönd, ljósmyndir, greiningar, útgáfur og umfjöllun: 

blank

https://www.si.is/idnthing/idnthing-2026/

Hér er myndin mín

ewr

we

wer

cv

Hér er tilvitnun

Hrafn Thoroddsen