Beint í efni

Hlýtur við­ur­kenn­ingu EWMA fyrir frum­kvöðlastarf

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, hlýtur viðurkenningu EWMA fyrir frumkvöðlastarf.

Hlýtur viðurkenningu EWMA fyrir frumkvöðlastarf

Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi og forstjóri Kerecis, sem er aðildarfyrirtæki SI var valinn frumkvöðull ársins á árlegri nýsköpunarráðstefnu evrópsku samtakanna European Wound management Association, EWMA, sem haldin var í London í síðustu viku. Viðurkenningin sem nefnist Presidents Wound Care Entrepreneur of the Year Award er veitt einstaklingi sem hefur sýnt einstakt frumkvöðlastarf og lagt mikið af mörkum í sáralausnum til að auka lífsgæði sjúklinga. Guðmundur hlýtur viðurkenninguna fyrir störf sín í nýsköpun við að nýta fiskroð til að meðhöndla sár.

Í tilkynningu er haft eftir Kirsi Isoherranen, forseta EWMA, að með því að taka við þessari viðurkenningu veiti Guðmundur innblástur og minni á mikilvægi nýsköpunar, þrautseigju og samúðar. Hún segir að hans merkilega ferðalag haldi áfram að hvetja aðra til að ná árangri í leit að því að bæta heilsu og vellíðan fólks.

kerecis.jpg
Guðmundur Fertram tók við viðurkenningunni frá Kirsi Isoherranen, forseta EWMA.

Hlýtur viðurkenningu EWMA fyrir frumkvöðlastarf - Samtök Iðnaðarins