Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, tók þátt í umræðum á fundi Landsbankans í Hörpu í gær þar sem kynnt var ný hagspá undir yfirskriftinni Hagkerfið kemur inn til mjúkrar lendingar. Guðrún sagði meðal annars að spár sem þessar væru mikilvægur grundvöllur umræðu um efnahagsmál og notadrjúgt tæki til ákvarðanatöku, m.a. í hagstjórn og stjórn fyrirtækja. Hún sagði jafnframt að framtíðin sem væri verið að spá fyrir um markaðist af þeim ákvörðunum sem teknar væru í dag. Hvernig væri tekist á við áskoranir eða viðfangsefni á borð við umhverfismál, tæknibreytingar og öldrun þjóða muni hafa áhrif á það hvernig framtíð bíður okkar. Allt væru þetta ákvarðanir sem skeri úr um hvernig samkeppnisstaða íslenskra fyrirtækja þróast, hvort þau geti áfram skapað aukin verðmæti og störf til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag.
Hvernig tekist er á við áskoranir hefur áhrif á framtíðina
Hvernig tekist er á við áskoranir hefur áhrif á framtíðina
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI, tók þátt í umræðum á fundi Landsbankans í Hörpu um nýja hagspá.

Tengt efni
Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.

Halda þarf sérstöðu Íslands á lofti við mótun umhverfisregluverks í Evrópu
Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, stýrði umræðum á Umhverfisdegi atvinnulífsins um hagsmunagæslu orku- og umhverfismála í Brussel.

Aðgangur stóriðju að endurnýjanlegri orku eitt stærsta framlag Íslands til loftlagsmála
Guðný Hjaltadóttir, viðskiptastjóri hjá SI, flutti erindi um sérstöðu Íslands og samkeppnishæfni stóriðju á Umhverfisdegi atvinnulífsins.
