Beint í efni

Iðnaður skapar 23% lands­fram­leiðsl­unnar

Í nýrri greiningu SI kemur fram að iðnaður skapi 23% landsframleiðslunnar eða 582 ma.kr.

Iðnaður skapar 23% landsframleiðslunnar

Íslenskur iðnaður er mjög umfangsmikill í íslensku efnahagslífi. Skapaði greinin tæplega 23% landsframleiðslunnar með beinum hætti á árinu 2017 eða um 582 ma.kr. Lætur því nærri að iðnaður hafi á því ári skapað eina af hverjum fjórum krónum sem urðu til innan íslenska hagkerfisins. Ef með er tekið óbeint framlag greinarinnar til verðmætasköpunar hagkerfisins er umfang hennar umtalsvert meira. Iðnaður er því ein af megin undirstöðum íslensks efnahagslífs. Þetta kemur meðal annars fram í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins.

Hér er hægt að nálgast greiningu SI í heild sinni.

Iðnaður skapar 23% landsframleiðslunnar - Samtök Iðnaðarins