Beint í efni

Íslenskt - gjörið svo vel fær tilnefningu FÍT

Íslenskt - gjörið svo vel hefur fengið tilnefningu FÍT í opnum stafrænum flokki.

Íslenskt - gjörið svo vel tilnefnt í flokki stafrænna auglýsinga

Tilkynnt hefur verið um tilnefningar til FÍT-verðlaun­anna 2019. Meðal tilnefninga er Íslenskt - gjörið svo vel sem Stefán Einarsson hjá Hvíta húsinu hannaði. Tilnefningin er í opnum stafrænum flokki. Á vef FÍT er hægt að skoða allar tilnefningarnar. FÍT sem stendur fyrir Félag íslenskra teiknara er félagsskapur grafískra hönnuða og myndhöfunda á Íslandi.

Íslenskt - gjörið svo vel er átaksverkefni ætlað að efla vitund Íslendinga á íslenskum vörum. Um er að ræða samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka atvinnulífsins og Bændasamtaka Íslands.

Tilnefning-FIT
Íslenskt - gjörið svo vel fær tilnefningu FÍT - Samtök Iðnaðarins