Landslag, sem er aðili að Samtökum iðnaðarins, hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðlegu Rosa Barba Landscape Prize en þau eru ein virtustu verðlaun sem veitt eru í landslagsarkitektúr. Verðlaunin fékk Landslag fyrir hönnunarverkefni sem er tröppustígur upp á Saxhól á Snæfellsnesi en Saxhóll er lítill gígur, 45 m hár, miðja vegu milli Hellna og Rifs. Í frétt Vísis af verðlaununum segir að dómnefndin hafi tekið íslenska verkefnið fram yfir átta önnur, þar á meðal tvö risastór kínversk verkefni og eitt stórt frá Mexíkó. Rosa Barba verðlaunin eru veitt annað hvert ár og er haft eftir landslagsarkitekt hjá Landslagi að þetta sé í fyrsta skipti sem íslenskir landslagsarkitektar fái slíka viðurkenningu. Á vef Vísis er hægt að lesa nánar um Landslag og viðurkenninguna. Starfsfólk Landslags og makar í tröppustígnum á Saxhól.
Íslenskt mannvirki fær alþjóðlega viðurkenningu
Landslag hlaut fyrstu verðlaun í alþjóðlegu Rosa Barba Landscape Prize.

Tengt efni
Ný rafmagnsöryggisgátt HMS kynnt í samstarfi við rafverktaka

Innviðaskuld vegakerfisins velt yfir á framtíðarkynslóðir
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Síðdegisútvarpi Rásar 2 og Morgunblaðinu um vaxandi bil á milli gjaldheimtu ríkisins af bifreiðum og útgjalda til viðhalds og uppbyggingar á vegakerfinu.

Iðan með nýtt hlaðvarp um bygginga- og mannvirkjagreinar
