Aðalfundur Landssambands bakarameistara, LABAK, fór fram síðastliðinn laugardag. Eftirfarandi breytingar urðu á stjórn félagsins: Jón Albert Kristinsson, sem gegnt hefur formannsembætti síðastliðin þrjú ár, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Jóhannes Felixson, þekktur sem Jói Fel, var kosinn formaður í hans stað. Jóhannes sat í stjórn LABAK samfellt í 15 ár, þar af 7 ár sem formaður. Róbert Óttarsson og Sigurbjörg Sigþórsdóttir koma ný inn í stjórn í stað þeirra Jóns Þórs Lúðvíkssonar og Reynis Carls Þorleifssonar. Sigurbjörg er fysta konan sem tekur sæti í stjórn LABAK.
Jói Fel formaður LABAK á ný
Jói Fel formaður LABAK á ný
Á aðalfundi LABAK var Jóhannes Felixson kosinn formaður.

Tengt efni
Gagnaverin styrkja útflutning og skapa verðmæt störf
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Speglinum á Rás 1 um starfsemi gagnavera á Íslandi.

Gagnaver á Íslandi renna styrkari stoðum undir útflutningstekjur hagkerfisins
Rætt er við Ingólf Bender, aðalhagfræðing SI, í Morgunblaðinu um mikinn vöxt útflutningstekna gagnavera á Íslandi.

Fjölmennt á Umhverfisdegi atvinnulífsins
Á fjölmennum Umhverfisdegi atvinnulífsins var rætt um sérstöðu Íslands en dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ.
