Kallað hefur verið eftir tilnefningum fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins sem afhent verða 9. október næstkomandi í Hörpu. Veitt eru tvenn verðlaun, umhverfisfyrirtæki ársins og framtak ársins. Hægt er að senda tilnefningar á netfangið sa@sa.is fyrir 7. september merkt „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“. Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti: Umhverfisfyrirtæki ársins Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel Innra umhverfi er öruggt Áhættumat hefur verið gert fyrir starfsemina Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið Framtak ársins Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr umhverfisáhrifum af starfsemi sinni Hefur komið fram með nýjung – vöru, þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.
Kallað eftir tilnefningum fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins
Umhverfisverðlaun atvinnulífsins verða afhent 9. október og er hægt að senda inn tilnefningar fram til 7. september.



