Beint í efni

Kynn­ing­ar­fund­ir víða um land um ábyrgð í mann­virkja­gerð

Kynningarfundir um nýútgefið rit SI um ábyrgð í mannvirkjagerð hafa verið haldnir víða um landið.

Kynningarfundir víða um land um ábyrgð í mannvirkjagerð

Fulltrúar Samtaka iðnaðarins hafa farið víða um land og kynnt rit sem samtökin gáfu út fyrir skömmu um ábyrgð þeirra sem koma að byggingu mannvirkja hér á landi. Í útgáfunni er farið yfir gildandi reglur um ábyrgð og lögbundið hlutverk hönnuða, hönnunarstjóra, byggingarstjóra og iðnmeistara. Fyrsti kynningarfundurinn fór fram í Húsi atvinnulífsins í Reykjavík en síðan tóku við fundir á Selfossi, Akureyri, Ísafirði, Egilsstöðum, Reykjanesi og Vesturlandi. Það eru þau Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri hugverkasviðs SI, Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri byggingariðnaðar á mannvirkjasviði SI, og Kristján Daníel Sigurbergsson, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, sem hafa haldið kynningarnar víða um landið.

Ritið er aðgengilegt öllum félagsmönnum Samtaka iðnaðarins og er hægt að nálgast útgáfurnar með því að hafa samband við mottaka@si.is.

Myndin hér fyrir ofan er tekin á fundinum á Akureyri.

Kynningarfundir víða um land um ábyrgð í mannvirkjagerð - Samtök Iðnaðarins