Beint í efni

Lokadagur tilnefninga fyrir Um­hverf­is­verð­laun at­vinnu­lífs­ins

Hægt er að senda inn tilnefningar fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins fram til 14. september.

Óskað eftir tilnefningum til umhverfisverðlauna atvinnulífsins

Tilnefningar fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins þurfa að berast fyrir föstudaginn næstkomandi 14. september. Verðlaunin verða veitt á Umhverfisdegi atvinnulífsins sem fram fer í Hörpu miðvikudaginn 17. október. Veitt eru tvenn verðlaun; umhverfisfyrirtæki ársins og framtak ársins. Það er forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sem afhendir verðlaunin. Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

Tilnefningar er hægt að senda með tölvupósti á sa@sa.is merkt: „Tilnefning til umhverfisverðlauna atvinnulífsins“.

Dómnefnd velur úr tilnefningum og skoðar meðal annars eftirfarandi þætti:

Umhverfisfyrirtæki ársins

  • Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
  • Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
  • Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
  • Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
  • Innra umhverfi er öruggt
  • Áhættumat hefur verið gert fyrir starfsemina
  • Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið

Framtak ársins

  • Hefur komið fram með nýjung – nýja vöru, þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif
  • Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
  • Gagnast í baráttu við loftslagsbreytingar
Lokadagur tilnefninga fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins - Samtök Iðnaðarins