Beint í efni

Málþing á Degi götu­lýs­ingar hjá Rafmennt

Dagur götulýsingar fer fram í Rafmennt 2. febrúar kl. 13.00-15.00.

Málþing á Degi götulýsingar hjá Rafmennt

Rafmennt í samstarfi við Rafal stendur fyrir málþingi á Degi götulýsingar á morgun fimmtudaginn 2. febrúar kl. 13.00 að Stórhöfða 27 ásamt beinu streymi. Með tækniframförum síðustu ára og breyttu rekstrarumhverfi götulýsingar myndast mörg tækifæri. Á málþinginu verður fjallað um götulýsingu og götuljósastýringar frá sjónarhornum mismunandi aðila, hönnuði, rekstraraðila, söluaðila, uppsetningaraðila og verkkaupa götulýsingar. Markmiðið er að fá innsýn í stöðu, framtíðarsýn og möguleikana í götulýsingu á Íslandi.

Dagskrá

  • 13:00 Ljósvist utan Lóðarmarka - Guðjón L. Sigurðsson, ljósvistarhönnuður IALD hjá Liska
  • 13:15 Intelilight ljósastýring fyrir götulýsingu - Marsia Moutzouri og Dinu Tepes frá Flashnet
  • 13:30 Speglar og linsur í götulýsingu - Halldór Heimisson, ábyrgðarmaður lýsingaklasa hjá Reykjafell
  • 13:45 Reynsla í rekstri á götulýsingu - Arnar Heiðarsson, deildarstjóri hjá Rafal
  • 14:00 Nýjar áskoranir fyrir verkkaupa - Viðar Einarsson, teymisstjóri rafmagnsmála hjá Reykjavíkurborg
  • 14:15 Pallborðsumræður

Fundarstjóri er Þór Pálsson, framkvæmdastjóri RAFMENNT

Hér er hægt að nálgast beint streymi:

https://www.youtube.com/watch?v=0IpcsdiGzZg
Málþing á Degi götulýsingar hjá Rafmennt - Samtök Iðnaðarins