„Mögulegar viðskiptahindranir geta haft veruleg áhrif á íslenskan iðnað, bæði beint og óbeint. Jafnvel þó að staða Íslands sé frábrugðin stöðu Noregs að því leyti að Ísland og Kína hafa gert með sér fríverslunarsamning þá breytir það ekki þeirri staðreynd að Ísland er ekki hluti af tollabandalagi ESB,“ segir Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, í frétt FF7 um áhyggjur NHO, norskra systursamtaka SI, af vaxandi spennu í samskiptum ESB og Kína sem FF7 fjallaði um.
Í frétt FF7 kemur fram að Samtök iðnaðarins taka undir þessar áhyggjur vegna aukinnar spennu í samskiptum ESB og Kína. Lilja bendir á að hækki ESB tolla geti það bitnað á íslenskum iðnaði líkt og í tilviki kísilmálms og járnblendis. „Mikilvægt er að aðgerðir ESB sem eru til þess fallnar að styrkja evrópskan iðnað leiði ekki til þess að íslensk fyrirtæki verði fyrir nýjum viðskiptahindrunum eða standi höllum fæti gagnvart fyrirtækjum innan ESB.“
Hún segir að í ljósi stöðunnar sé „mikilvægt nú sem fyrr að stjórnvöld gæti hagsmuna Íslands sem órjúfanlegs hluta af innri markaði Evrópu og haldi á lofti mikilvægi Íslands þegar ESB mótar viðskipta- og iðnaðarstefnu sína.“
FF7, 9. október 2026.



