Staðlaráð Íslands stendur fyrir námskeiði um vernd persónuupplýsinga þar sem úskýrðar eru hagnýtar aðferðir við að uppfylla kröfur laga og reglna um persónuvernd með stýringum í staðlinum ISO/IEC 27701. Námskeiðið sem fer fram í húsakynnum Staðlaráðs Íslands í Þórunnartúni 2 verður haldið fimmtudaginn 6. febrúar kl. 9-17. Hámarksfjöldi þátttakenda er 14 og er hægt að skrá sig hér.
Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja vinna á skipulegan hátt við að uppfylla ákvæði persónuverndarlaga og reglugerðar ESB um persónuvernd, GDPR. Leiðbeinandi er Marinó G. Njálsson, tölvunarfræðingur og sérfræðingur í stjórnun upplýsingaöryggis.
Á vef Staðlaráðs Íslands er hægt að nálgast dagskrá og frekari upplýsingar um námskeiðið.



