Beint í efni

Nemendur í Kárs­nes­skóla kynnast rafiðnaði hjá Rafmennt

Rafmennt fékk til sín nemendur í Kársnesskóla sem fengu kynningu á rafiðnaði.

Nemendur í Kársnesskóla kynnast rafiðnaði hjá Rafmennt

Nemendur í Kársnesskóla heimsóttu Rafmennt og fengu þar kynningu á verkefnum í rafiðnaði. Hópurinn sem mætti í Rafmennt er einn af fjórum hópum nemenda í náms- og starfsfræðslu 9. bekkjar í Kársnesskóla sem Ásthildur Guðlaugsdóttir, námsráðgjafi Kársnesskóla, hefur umsjón með.

Starfsfólk Rafmenntar ásamt félögum RSÍ-UNG tóku á móti hópnum og leiðbeindu þeim í gegnum fjölbreytt verkefni sem þau spreyttu sig á. Nemendurnir fá meðal annars að búa til sitt eigið vasaljós úr íhlutum, beygja rafmagnsrör, draga vír í röralagnir, tengja ljós og rofa auk annarra fjölbreyttra verkefna.

Nemendur í Kársnesskóla kynnast rafiðnaði hjá Rafmennt - Samtök Iðnaðarins