Beint í efni

Norrænir blikk­smiðju­eig­end­ur funduðu í Kaup­manna­höfn

Félag blikksmiðjueigenda funduðu með norrænum meistarafélögum í Kaupmannahöfn.

Norrænir blikksmiðjueigendur funduðu í Kaupmannahöfn

Félag blikksmiðjueigenda, FBE, tók þátt í samnorrænum fundi blikksmiða í samtökunum Nordisk ventilations- og blikkenslagermesterforening sem haldinn var í Kaupmannahöfn í síðustu viku.

Fundinn sóttu, auk formanns og framkvæmdastjóra FBE, fulltrúar systursamtaka FBE frá Noreg, Svíþjóð og Danmörk. Auk hefðbundinna verkefna var áhersla lögð á endurvinnslu- og loftslagsmál.

Á myndinni hér fyrir ofan má sjá Sævar Jónsson, formann Félags blikksmiðjueigenda, með formönnum meistarafélaganna í Danmörku og Svíþjóð, Sören Schmidt og Jörgen Rasmusson.

Sören Schmidt, formaður í Danmörku, Sævar Jónsson, formaður á Íslandi, Jan Henrik Nygård, formaður í Noregi, Ane Dyrnes, framkvæmdastjóri í Noregi, Jörgen Rasmusson, formaður í Svíþjóð, Johan Lindström framkvæmdastjóri í Svíþjóð, og Jan Eske Schmidt, framkvæmdastjóri í Danmörku.

Fundur-i-Kaupmannahofn3
Ane Dyrnes frá Noregi flutti erindi.

Norrænir blikksmiðjueigendur funduðu í Kaupmannahöfn - Samtök Iðnaðarins