Ný stjórn var kosin á aðalfundi Félags íslenskra gullsmiða sem haldinn var í gær í Húsi atvinnulífsins. Arna Arnarsdóttir er áfram formaður og með henni í stjórn sitja Kristinn Þór Ólafsson, Hrannar Freyr Hallgrímsson, gjaldkeri, Unnur Eir Björnsdóttir og Sólborg Sigurðardóttir sem kemur ný inn í stjórnina í stað Haraldar Hrafns Hallgrímssonar.




