Ný stjórn var kosin á aðalfundi Ljósmyndarafélags Íslands sem fram fór í gær í Húsi atvinnulífsins. Guðmundur Viðarson tók við sem formaður og aðrir í stjórn eru Rán P. Bjargardóttir, Anna Kristín Scheving, Gunnar Leifur Jónasson, Anton Bjarni Alfreðsson og Ólína Kristín Margeirsdóttir.






